Hoppa yfir valmynd
2. maí 2024 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á blómum

Með vísan til 65. gr. búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum og til reglugerðar um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl. nr. 1178/2023, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutningsmagn blóma sem sótt skal um í stykkjatölu fyrir tímabilið 1. júlí - 31. desember 2024.

Vara

Tímabil

 Vörumagn  

 Verðtollur  

 Magntollur  

Tollskrárnr.: 

stk.

%

kr./stk.

Blómstrandi plöntur með knúppum eða blómum, þó ekki kaktusar:

0602.9081-.9083 og 0602.9088

Blómstrandi plöntur með knúppum eða blómum, þó ekki kaktusar

01.07.-31.12.24

1.650

30

0

Aðrar:

0602.9093

Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki kaktusar og þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna

01.07.-31.12.24

2.160

30

0

Lifandi:

0603.1400

Tryggðablóm (Chrysanthemums)

01.07.-30.12.24

6.500

30

0

0603.1906-1908, 0603.1911-1918 og 0603.1999

Afskorin blóm og blómknappar sem notað er í vendi eða til skrauts, lifandi, þurrkað, litað, bleikt, gegndreypt eða unnið á annan hátt, þ.m.t. geislafíflar, sólliljur, fétoppar, silkivendir, ilmskúfar, ljónsmunnar, gullhrís, silfurstjörnur, brúðarslör, flamingoblóm og túlípanar.

01.07.-31.12.24

118.750

30

0

Berist umsóknir um meira magn, en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Úthlutun er ekki framseljanleg.

Umsóknar- og tilboðsferli vegna úthlutunar tollkvótans fer fram með rafrænum hætti á vefkerfinu tollkvoti.is. Nýskráning notenda í vefkerfið fer fram hjá matvælaráðuneytinu. Ef óskað er eftir nýskráningu notenda skal hafa samband við skrifstofu landbúnaðar í síma 545-9700 eða á [email protected]. Sjá tengla fyrir nánari upplýsingar um vefkerfið og leiðbeiningar.

Opnað verður fyrir umsóknir á tollkvoti.is; föstudaginn 3. maí 2024 og skulu umsóknir berast fyrir kl. 23.59, mánudaginn 13. maí 2024.

Matvælaráðuneytinu,

2. maí 2024.

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum